Þingkarlar bregðast við áskorun kvenna í stjórnmálum

Karlkyns fulltrúar allra flokka á þingi hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna áskorunar 306 stjórnmálakvenna sem birt var í gær vegna kynferðisofbeldis og áreitni innan stjórnmálanna. Í yfirlýsingu þingkarlanna segir “ Undirritaðir fulltrúar allra flokka á þingi lýsa yfir fullum vilja til að bregðast við áskorun 306 stjórnmálakvenna vegna kynferðisofbeldis og áreitni í stjórnmálunum sem birtist í gær undir yfirskriftinni „Í skugga valdsins“. Við höfum nú þegar rætt í okkar hópi hvað við getum lagt af mörkum innan Alþingis og viljum halda því samtali áfram til að móta raunhæfar aðgerðir í samráði við sérfræðinga og konurnar sem við störfum með. Kynferðisofbeldi og áreitni á sér stað í stjórnmálum rétt eins og annars staðar í samfélaginu. Því verðum við að breyta.“
Andrés Ingi Jónsson, Vinstri grænum
Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingu
Björn Leví Gunnarsson, Pírötum
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki
Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki fólksins
Gunnar Bragi Sveinsson, Miðflokki
Helgi Hrafn Gunnarsson, Pírötum
Jón Steindór Valdimarsson, Viðreisn
Kolbeinn Óttarsson Proppé, Vinstri grænum
Logi Einarsson, Samfylkingu
Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki
Willum Þór Þórsson, Framsóknarflokki
Þorsteinn Víglundsson, Viðreisn

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila