Könnun: Telja að Þórhildur Sunna eigi ekki að segja af sér vegna brota hennar gegn siðareglum Alþingis

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata.

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata eigi ekki að segja af sér þingmennsku vegna brota hennar gegn siðareglum Alþingis.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata að segja af sér þingmennsku vegna brota hennar á siðareglum Alþingis? Niðurstaðan var eftirfarandi:


Nei 62,2%

Já 37,1%

Hlutlaus 0,1%

Atkvæði 912

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila