Þrír handteknir við þinghúsið fyrir að meina þingmönnum inngöngu

Þrír voru handteknir í kjölfar mótmælaaðgerða samtakanna No Borders en aðgerðir samtakanna fólust í að meina þingmönnum að ganga inn í þinghúsið. Hópurinn sem um ræðir stillti sér upp við inngang þinghússins á þann hátt að þingmenn komust ekki inn í húsið. Þá stóð hluti hópsins fyrir innkeyrslunni að bílastæðum þingmanna svo þingmenn þurftu að leggja bifreiðum sínum annars staðar. Þegar ljóst varð að hópurinn ætlaði að halda uppteknum hætti áfram óskuðu starfsmenn Alþingis eftir aðstoð lögreglu sem kom á svæðið og handtók þrjá einstaklinga.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila