Tillögur starfshóps um greiðslur til foreldra langveikra og fatlaðra barna birtar

Velferðarráðuneytið birti í dag áfangaskýrslu með tillögum starfshóps sem vinnur að endurskoðun löggjafar um fjárhagslegan stuðning til fjöskyldna fatlaðra og langveikra barna. Frestur til að skila umsögnum er til 12. mars næstkomandi.
Starfshópurinn var skipaður í janúar 2015 af þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra. Formaður hópsins er Rakel Dögg Óskarsdóttir. Auk hennar eiga þar sæti Ágúst þór Sigurðsson og Hildur Sverrisdóttir, lögfræðingar í velferðarráðuneytinu, Ragna K. Marinósdóttir, fulltrúi Umhyggju – félagslangveikra barna, Friðrik Sigurðsson, fulltrúi Landssamtakanna Þroskahjálpar og Hjörtur Heiðar Jónsson, fulltrúi Öryrkjabandalags Íslands.
Starfshópnum var falið að fara yfir lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna sem kveða á um umönnunargreiðslur til framfærenda fatlaðra barna. Gildandi kerfi hefur verið gagnrýnt fyrir að vera flókið og taka of mikið mið af sjúkdómsgreiningum barna fremur en þörf þeirra fyrir umönnun. Fram kemur í tilkynningu að verkefni starfshópsins hafi verið að meta reynsluna af framkvæmd löggjafarinnar og mögulega þörf fyrir breytingar.
Í áfangaskýrslu starfshópsins eru settar fram tillögur sem hafa það að markmiði að einfalda kerfið um fjárhagslegan stuðning til fjölskyldna fatlaðra og langveikra barna, auka áherslu á umönnun í stað læknisfræðilegrar greiningar og aðgreina greiðslur sem byggðar eru annars vegar á umönnun barnsins og hins vegar á kostnaði.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila