Tómas Ellert Tómasson, verkfræðingur og verkefnastjóri á skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg, mun leiða lista Miðflokksins í Árborg í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðflokknum. Tómas Ellert er fæddur 1970 og er byggingarverkfræðingur að mennt. Í tilkynningunni segir jafnframt að Miðflokknum sé mikill fengur að fá Tómas Ellert til liðs við sig en hann sé gjörkunnugur bæjarstjórnarmálum og starfaði hann sem varabæjarfulltrúi í Árborg 2010-2014 ásamt því að vera stjórnarformaður Leigubústaða Árborgar, varaformaður skipulags- og byggingarnefndar, í stjórn framkvæmda- og veitusviðs. Þá hafi Tómas unnið ýms trúnaðarstörf fyrir íþrótta og æskulýðsfélög. Þá segir að Tómas Ellert hafi gengt starfi kosningastjóra Miðflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar s.l. haust, hann er jafnframt stofnandi og ritstjóri Forsíðufrétta, grasrótarvefmiðils Miðflokksins – www.forsidufrettir.net.