Trump ætlar að endureisa vegakerfið í Bandaríkjunum

Donald Trump forseti Bandaríkjanna

Donald Trump forseti Bandaríkjanna ætlar að stórbæta samgöngumannvirki um öll Bandríkin. Trump segir að umbæturnar verði þær mestu síðan í tíð Eisenhower þáverandi forseta“Eisenhower forseti var sá forseti sem lét gera gríðarmiklar umbætur á samgöngukerfinu og fjárfesti í samgöngum þegar hann lét byggja hraðbrautir okkar bandaríkjamanna, það er kominn tími til þess að fjárfesta á ný með sama hætti í samgöngum„sagði Trump um málið í samtali við fjölmiðla. Þá ætlar Trump að opna leiðir til þess að ólöglegir innflytjendur í Bandaríkjunum geti starfað með löglegum hætti í landinu og borgað skatta líkt og aðrir skattgreiðendur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila