Þáttastjórnandinn Tucker Carlson hjá Fox segir að valdhafar og blaðamenn víki meðvitað hjá því að lýsa kristnum sem fórnarlömbum hryðjuverka. Hryðjuverkamennirnir í Sri Lanka voru róttækir íslamistar, tilefnið var af trúarlegum ástæðum og fórnarlömbin voru kristið fólk. M.a. þá kölluðu Barack Obama og Hillary Clinton fórnarlömbin fyrir „páskadýrkendur“ í staðinn fyrir kristna:
„Páskadýrkendur? Af hverju segið þið ekki kristnir? Enginn dýrkar páskana“ segir Carlson. „En það er skýring, fagurgali er engin tilviljun. Stjórnmálamennirnir halda að þeir kristnu séu vandamálið, að þeir séu hættulegir. En fengju þeir að vita sannleikann gengju þeir kannski af göflunum og færu í nýja krossför“
Hryðjuverkasérfræðingurinn Maajid Nawaz útskýrir fyrir Tucker af hverju vinstri menn vilja ekki nota orðið kristinn: „Þeir hafa ekki viljað kalla íslamska öfgastefnu réttu nafni eða lýsa hryðjuverkastarfsemi heilagastríðsmanna sem ofbeldisfullri stefnu, því út frá eigin stjórnmálalegum sjóndeildarhring halda þeir að hvítt vald og hægriöfgastefna sé hættulegri. Svo er að sjálfsögðu praktísk-pólitísk hlið á málinu. Þeir snúa sér að ákveðnum hópi kjósenda og eru hræddir við það að verða til vandræða hjá þessum kjósendum, ef þeir kalla hlutina réttum nöfnum, jafnvel þótt þeir vildu ekkert frekar en segja hlutina eins og þeir eru.“
[youtube]https://youtu.be/IfXG4q1D8hA[/youtube]