Lögreglan í Malmö hefur handtekið tvo einstaklinga sem grunaðir eru um aðild að sprengjuárás á lögreglustöð við Rosengård í Malmö í gærkvöldi. Að sögn íbúa í hverfinu var sprengjan afar öflug og voru þeir afar óttaslegnir vegna málsins. Engan sakaði þó í árásinni en ljóst er að litlu mátti muna að illa færi, enda hafi bifreiðar við húsið skemmst og þá urðu einnig skemmdir á lögreglustöðinni sjálfri. Lögreglan segir ljóst að sprenguárásinni var beint gegn lögreglunni og segir Carina Persson lögreglustjóri að það sé algjörlega óásættanlegt að ráðist sé að lögreglunni með þessum hætti.