Tveir í haldi vegna andláts konu

Tveir karlmenn voru handteknir í gærkvöld vegna andláts konu á fimmtugsaldri á Hagamel. Talið er að andlát konunnar hafi borið að með saknæmum hætti en grunur leikur á að vopni hafi verið beitt gegn konunni með þeim afleiðingum að hún lést. Að sögn lögreglu er konan af erlendu bergi brotin en annar hinna handteknu er einnig af erlendu bergi brotinn. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir mönnunum tveimur en ákvörðunar um það er að vænta síðar í dag. Rannsókn málsins er á frumstigi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila