Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag karl og konu á fertugs og fimmtugsaldri vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmikilli vændisstarfsemi. Grunur leikur á að fólkið sem er par standi að baki starfseminni en fólkið var handtekið í kjölfar húsleitar lögreglu á þremur stöðum í Reykjavík. Á tveimur þessara staða voru enn fremur þrjár konur á þrítugsaldri sem ekki voru handteknar og rannsakar lögregla hvort þær séu þolendur mansals. Fram kemur í tilkynningu lögreglu að fundin verði viðeigandi úrræði fyrir konurnar þrjár.