Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Japan undirritaður

Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Japan var undirritaður í Reykjavík í vikunni. Samningurinn, sem nær til tekjuskatta, var undirritaður af Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra fyrir hönd Íslands og Yasuhiko Kitagawa sendiherra Japans á Íslandi fyrir hönd Japans.
Helstu efnisatriði samningsins eru þau að enginn afdráttarskattur er af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 25% eignarhlutdeild í félaginu sem greiðir arðinn, að móttakandi arðsins sé raunverulegur eigandi og að hann hafi átt hlutabréf í félaginu í a.m.k. sex mánuði áður en arður er greiddur út eða sé í eigu lífeyrissjóða að nánar tilgreindum skilyrðum. Samið var um 5% afdráttarskatt af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 10% í félaginu sem greiðir arðinn, að móttakandi arðsins sé raunverulegur eigandi og hafi átt hlutabréf í félaginu í a.m.k. sex mánuði áður en arður er greiddur út. Að öðrum kosti er afdráttarskattur af arði 15%.
Enginn afdráttarskattur er af vöxtum eða þóknunum. Samkvæmt samningnum er frádráttaraðferð beitt í því skyni að koma í veg fyrir tvísköttun og jafnframt er að finna ákvæði um aðstoð við innheimtu skatta. Í samningnum er að finna sérstakt ákvæði sem á að koma í veg fyrir misneytingu ívilnana sem samningurinn veitir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila