Twitter hefur hannað viðvörunarkerfi vegna ESB-þingkosninganna sem tekið verður í notkun í næstu viku. Gerir það notendum kleift að tilkynna Twitter umsvifalaust um tíst „sem viðkomandi telur vera misvísandi eða fake news.“ Er þetta gert að kröfu Evrópusambandsins um að stöðva beri „rangar upplýsingar um kosningarnar“. Í skýrslu ESB frá í mars eru Twitter, Google og Facebook ásökuð um að gera ekki nægjanlega mikið til að koma í veg fyrir dreifingu „fake news“. Núna eiga notendur Twitter sem telja að verið sé að dreifa röngum upplýsingum í kosningunum til ESB-þingsins að tilkynna Twitter um þær með einu klikki. Sem dæmi nefnir Twitter „afvegaleiðandi upplýsingar um að kjósendur geti kosið í textaskilaboðum, tölvupósti eða með símhringingu, beiðni um persónuupplýsingar, kosningadag eða tíma kosninganna.“ Þannig mun Twitter tafarlaust geta fjarlægt viðkomandi færslu frá síðum sínum. Er sagt að þetta eigi einungis að vera í gildi eina viku fram yfir kosningar til ESB-þingsins 26. maí n.k. Líklega mun tilkoma þessa nýja kæruverkfæris Twitter opna flóðbylgju ritskoðunar því einnig á að „taka burtu skilaboð sem ýta undir aukna pólitíska spennu“.