Landhelgisgæsla Íslands, Umhverfisstofnun, Samgöngustofa og Ísafjarðarhöfn héldu á dögunum mjög umfangsmikla mengunarvarnaræfingu þar sem æfð voru viðbrögð við stóru olíumengunarslysi. Um er að ræða æfingu sem haldin er árlega og miðar að því að þjálfa viðbragðsaðila við mögulegu mengunarslysi við Íslandsstrendur en bæði varðskipið Þór og TF-SIF þyrla Landhelgisgæslunnar voru við æfinguna, auk dráttarbáts Ísafjarðarhafnar. Hlutverk Þórs var að koma búnaði og mannskap á ímyndaðan slysstað en sett var út flotgirðing sem dráttarbáturinn sá síðan um að leggja girðinguna í hring utan um það svæði sem skilgreint var sem mengað. Síðar í æfingunni voru æfðar olíudælingar úr sjó með sérstökum búnaði sem hannaður er til slíkra verka. Æfingin gekk vel að sögn þátttakenda og voru þeir sammála um nausyn slíkra æfinga enda þurfi að viðhalda þekkingu viðbragðsaðila í notkun þess tækjabúnaðar sem notaður er þegar mengunarslys verða á sjó eða við strandir.