Umferð beint um Þrengslin vegna framkvæmda

Vegna vegaframkvæmda á tveggja kílómetra kafla í Kömbunum verður umferð beint um Þrengslin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Í tilkynningunni segir að þetta gildi um umferð í báðar áttir frá kl.07:00 til til miðnættis í kvöld. Þá segir að merkingar verði settar upp á svæðinu til þess að upplýsa ökumenn nánar um skipulag umferðar á meðan framkvæmdunum stendur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila