Umhverfis og auðlindaráðherra fundaði með umhverfisráðherra Finnlands

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra ásamt Kimmo Tiilikainen, umhverfisráðherra Finnlands.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fundaði í vikunni með umhverfisráðherra Finnlands, Kimmo Tiilikainen, í Rovaniemi, höfuðstað Lapplands í Finnlandi.

Fundarefnið var formennska Íslands í Norðurskautsráðinu sem hefst á næsta ári. Finnar hafa gegnt formennsku frá árinu 2017. Rætt var um áherslur Finnlands í sinni formennskutíð og þau málefni sem Ísland mun hafa í brennidepli í formennsku sinni á árunum 2019-2021. Finnar hafa meðal annars lagt áherslu á umhverfisvernd, fjarskipti, veðurfræði og menntun.
Í tilkynningu segir að fundurinn hafi farið fram í tengslum við fund umhverfisráðherra Norðurskautsríkjanna sem hófst í vikunni í Rovaniemi. Þar var meðal annars rætt um  loftslagsbreytingar, líffræðilegan fjölbreytileika og mengunarvarnir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila