Umhverfisþing haldið í Hörpu

Umhverfisþing verður haldið í Silfurbergi Hörpu 20.október næstkomandi. Að þessu sinni verða loftslagsmálin í brennidepli en þau hafa verið mikið til umfjöllunar um heim allan undanfarin misseri. Á þinginu verða flutt erindi um hinar margvíslegu hliðar loftslagsbreytinga,  áhrif þeirra á Ísland og hvernig best verður tekist á við þær breytingar sem fylgja hlýnun jarðar. Þinginu lýkur með pallborðsumræðum. Drög að dagskrá þingsins má finna hér. Heiðursgestur þingsins verður Monica Araya frá Costa Rica. Hún er doktor í umhverfisfræði og mikill frumkvöðull í heimalandi sínu í öllu er varðar sjálfbærni, þróun hreinnar tækni og vistvænna orkugjafa. Erindi hennar mun fjalla um möguleika lítilla ríkja á að vera í fararbroddi í loftslagsmálum. Þingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir, en nauðsynlegt er að þátttakendur skrái sig fyrir 18. október næstkomandi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila