Umsóknum í grunnskólakennaranám fjölgar um nærri helming

Umsóknum um kennaranám fjölgar verulega milli ára, alls um rúmlega 200 í háskólunum fjórum sem bjóða upp á kennaranám hér á landi.  Hlutfallslega er fjölgunin mest hjá Listaháskóla Íslands þar sem umsóknum um nám í listkennsludeild fjölgaði um 170%, heilt yfir var 28% fjölgun umsókna í grunn- og meistaranám á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og fjölgaði umsækjendum einnig hjá Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Akureyri. Helmingi fleiri karlar sóttu um grunnskólakennaranám á grunn- og framhaldsstigi í Háskóla Íslands en í fyrra, alls 121, og karlkyns umsækjendur í nám í leikskólakennarafræðum eru þrefalt fleiri en árið áður, alls 23.
Það er sérlega ánægjulegt að merkja þessa aukningu hjá skólunum og ekki síst að fregna að karlkyns umsækjendum í kennaranám fjölgar umtalsvert, og að heilt yfir sé góð ásókn í nám í leikskólakennarafræðum,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. „Þetta er árangur samstarfs margra aðila, við erum að hefja ákveðna vegferð til þess að efla umgjörð um kennarastarfið og ég er þakklát öllum sem leggjast þar með á árar.

Í vor kynnti ráðherra aðgerðir sem miða að fjölgun kennara en þær voru unnar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, Háskólann á Akureyri, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, samtökin Heimili og skóla og Samtök iðnaðarins. Aðgerðirnar eru til fimm ára og gera áætlanir fyrir að umfang þeirra nemi 1,5 milljarði kr. á tímabilinu.

Í aðgerðunum felst meðal annars að frá og með næsta hausti býðst leik- og grunnskólakennaranemum á lokaári launað starfsnám. Þá geta nemendur á lokaári meistaranáms til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi sótt um námsstyrk til að sinna lokaverkefnum sínum samhliða launuðu starfsnámi. Mennta- og menningarmálaráðuneytið veitir enn fremur styrki til að fjölga kennurum með sérhæfingu í starfstengdri leiðsögn. Umsóknum um nám slíkra leiðsagnarkennara hefur fjölgað um 100% milli ára samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands.

Leiðsagnakennarar taka á móti nýjum kennurum sem koma til starfa innan skólanna, styðja nýliða í starfi og stuðla við símenntun og faglegri þróun. Þeir eru lykilfólk í skólakerfinu því með störfum sínum hafa þeir gríðarleg margfeldisáhrif – með því að efla einn kennara er stuðlað að árangri og vellíðan ótal nemenda,“ segir ráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila