Undirbúa fullgildingu samnings Evrópuráðsins um forvarnir gegn ofbeldi á konum

Utanríkisráðuneytið hefur hafið undirbúning að fullgildingu samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Í tilkynningu segir að stefnt sé að því að velferðarráðherra afhendi fullgildingarskjal Íslands framkvæmdastjóra Evrópuráðsins á rakarastofuráðstefnu í París síðar í þessari viku.
Evrópuráðið samþykkti samninginn um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi 11. maí 2011 og undirrituðu íslensk stjórnvöld hann sama dag. Samningurinn byggist á þeirri forsendu að ofbeldi gegn konum sé ein alvarlegasta tegund kynbundinna mannréttindabrota í heiminum. Markmið hans er meðal annars að vernda konur gegn öllum birtingarmyndum ofbeldis og fyrirbyggja ofbeldi, sækja til saka gerendur og uppræta ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi.
,,Jafnréttismál hafa lengi verið í forgrunni utanríkisstefnu Íslands. Við nýtum hvert tækifæri til að tala fyrir jafnrétti kynjanna og leggjum mikla áherslu á að kynbundnu ofbeldi, í hverskonar mynd, verði útrýmt bæði heima og heiman. Fullgilding þessa samnings er mikilvægt skref í þeirri baráttu, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.
Frá því samningurinn var undirritaður hafa íslensk stjórnvöld gert nauðsynlegar breytingar á íslenskri refsilöggjöf til að hægt yrði að fullgilda hann, meðal annars með breytingum á lögum um meðferð sakamála sem dómsmálaráðherra lagði fram. Í þau hafa verið sett ákvæði um heimilisofbeldi, nauðungarhjónabönd og þvingaðar ófrjósemisaðgerðir. Þá hefur verið unnið að því að koma í farveg ýmsum skyldum og aðgerðum sem hvíla á ríkinu samkvæmt samningnum en krefjast ekki lagabreytinga, svo sem varðandi rekstur kvennaathvarfa, aðra þjónustu við þolendur og meðferð fyrir gerendur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila