Unnur brá verður fulltrúi ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum

Unnur Brá Konráðsdóttir

Unni Brá Konráðsdóttur, aðstoðarmanni ríkisstjórnarinnar, verður falið að tryggja samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þetta var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær að tillögu forsætisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra.  Í tilkynningu segir að Unnur Brá muni annast samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, tryggja yfirsýn yfir verkefnið í heild sinni og annast eftirfylgni með framgangi loftslagsmála í heild, í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar. Þá mun Unnur Brá áfram vera verkefnisstjóri í vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar og sinna ýmsum öðrum þverfaglegum verkefnum sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila