Úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald

Karlmaður á fertugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald að kröfu lögreglu vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Maðurinn hefur verið í haldi lögreglu frá því málið kom upp í janúar. Dómurinn féllst þó ekki á aðalkröfu lögreglu sem fór fram á fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna en féllst á varakröfu lögreglunnar og verður maðurinn því í haldi til 20.apríl.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila