Úrskurðaður í fjögurra vikna farbann vegna rannsóknar á fíkniefnamáli

Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna farbannn, eða til 18. maí, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu embættisins um tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum á grundvelli almannahagsmuna, en gæsluvarðhald yfir manninum rann út í dag. Í tilkynningu segir að maðurinn hafi verið handtekinn í janúar og hafði því verið í haldi lögreglu í tólf vikur. Þá segir að rannsókn málsins, sem sé á lokastigi og sé meðal annars  unnin í samvinnu við spænsk yfirvöld, hafi verið tímafrek, og enn sé beðið gagna erlendis frá. Fram kemur að sú gagnaöflun feli þó ekki í sér brýna rannsóknarhagsmuni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila