Utanríkisráðherrar ræddu mannréttindi

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í vikunni fund með Peter S. Cayetano, utanríkisráðherra Filippseyja, í Genf en ráðherra gerði í ræðu sinni fyrir Mannréttindaráði SÞ í gær stöðu mannréttinda á Filippseyjum að sérstöku umtalsefni. „Það var gott að fá tækifæri til að ræða beint við starfsbróður minn á Filippseyjum og skýra betur út fyrir honum afstöðu Íslands til framgöngu filippeyskra stjórnvalda í baráttu gegn útbreiðslu fíkniefna. Þótt við Cayetano værum ekki sammála að öllu leyti var andrúmsloftið á fundinum jákvætt. Orð eru til alls fyrst,“ sagði utanríkisráðherra að fundinum loknum.

Það var Cayetano sem óskaði eftir fundinum en þar lýsti hann baráttu stjórnvalda á Filippseyjum gegn útbreiðslu eiturlyfja. Ísland talaði á síðasta ári fyrir hönd næstum fjörutíu þjóða og gagnrýndi mannréttindabrot stjórnvalda á Filippseyjum. Filippeyski ráðherrann kvaðst vonsvikinn yfir málflutningi Íslendinga. Stjórnvöld á Filippseyjum væru reiðubúin til að opna dyrnar fyrir þeim sem kynna vildu sér málin en væri mikilvægt væri að fólk myndaði sér ekki skoðun fyrirfram.
Utanríkisráðherra lagði áherslu á að slíkt eftirlit ætti að fara fram fyrir tilstilli viðeigandi stofnana Sameinuðu þjóðanna. „Ef Ísland getur stuðlað að því Filippseyjar láti af mótstöðu sinni við heimsóknir fulltrúa mannréttindastofnana SÞ er sjálfsagt að við leggjum okkar lóð á vogarskálar í þeim efnum,“ sagði Guðlaugur Þór og bætti við að það væri skref í rétta átt að Filippseyingar væru reiðubúnir að opna dyrnar með þessum hætti.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila