Úthluta 32 þúsundum tonna til sérstakra aðgerða í fiskveiðistjórnunarkerfinu

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur úthlutað 32.380 tonnum upp úr sjó eða alls 25.456 þorskígildistonnum fiskveiðiárinu 2018/2019 til að mæta áföllum, til stuðnings byggðalögum, til línuívilnunar, til strandveiða, til rækju- og skelbóta, frístundaveiðar og til annarra tímabundinna ráðstafana til að auka byggðafestu. Til samanburðar var á fiskveiðiárinu 2017/2018 úthlutað 33.145 tonnum upp úr sjó eða alls 26.362 þorskígildistonnum.
Ástæða þessarar lækkunar er fyrst og fremst vegna innbyrðis breytinga á þorskígildum milli tegunda sem skýrist af því að meðalverð á þorski hefur hækkað meira en meðalverð flestra annarra tegunda. Auk þessa er byggt á varfærinni spá um uppsjávarafla 2019.
Fram kemur í tilkynningu ap þrátt fyrir þessa lækkun á heildarmagni muni magn í flestar aðgerðir verða nær óbreytt á milli ára. Eina undantekningin sé magn í línuívilnun, en lækkun þess magns tekur mið af nýtingu línuívilnunar á þessu fiskveiðiári.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila