Dúntekja hjá dúnbændum víða um land hefur tafist fram úr hófi vegna mikillar vætutíðar að undanförnu. Að sögn kunnugra er fuglinn farinn að hefja varp mun fyrr en áður og því fyrr byrjað að taka dún úr hreiðrum. Eins og kunnugt er þá er æðardúnn afar verðmæt söluvara en í fyrra voru flutt út 789 kíló af æðardúni og námu verðmæti hans1,6 milljarði króna. Þó hefur orðið talsvert verðfall að undanförnu og því fæst eðli málsins samkvæmt minna fyrir unnin dún í ár en í fyrra.