Vel er hægt að rekja hverjir það voru sem skrifuðu upp á þá reikninga sem greiddir hafa verið í braggamálinu umtalaða. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Arnar Þórðarsonar í síðdegisútvarpinu á föstudag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Örn segir að þó verði ekki hægt að rekja hverjir hafi borið ábyrgð á þeim reikningum sem hljóða upp á upphæðir sem eru undir milljón „ flestir reikningarnir hafa verið að koma á árinu 2017 og 2018 og það má ekki gleyma því að reikningarnir eru ennþá að berast, ég er nú ekki löglærður en það þarf ekkert langan tíma til þess að sjá að hér hefur ekki verið farið eftir samþykktum og jafnvel lögum, það mun væntanlega koma í ljós við skoðun á málinu„,segir Örn. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.