Velferðarráðuneytið hlýtur jafnlaunavottun

Velferðarráðuneytið hefur hlotið vottun um að það starfræki launakerfi sem stenst kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Ráðherrar velferðarráðuneytisins tóku í dag við skírteini þessu til staðfestingar frá Vottun hf. sem er faggiltur vottunaraðili.
Alþingi samþykkti 1. júní síðastliðinn breytingar á jafnréttislögum sem skylda fyrirtæki og stofnanir með 25 starfsmenn eða fleiri til að innleiða jafnlaunakerfi sem uppfyllir kröfur jafnlaunastaðalsins og fá það staðfest með vottun hjá faggiltum vottunaraðila. Innleiðing laganna efur verið innleidd í skrefum en gert er ráð fyrir að fyrirtæki og stofnanir endurnýi jafnlaunavottun á þriggja ára fresti.
Undirbúningur að verkefninu hjá velferðarráðuneytinu hófst af krafti fyrir réttu ári en það hefur hefur m.a. falið í sér nákvæma starfaflokkun innan ráðuneytisins og launagreiningu sem byggist á starfaflokkuninni.
Markmiðið með því að innleiða jafnlaunakerfi er að innleiða markvissar og faglegar aðferðir við launaákvarðanir til að útrýma kynbundnum launamun og hvers konar öðrum launamun sem ekki verður skýrður með málefnalegum hætti.
Anna Lilja Gunnarsdóttir, ráðuneytisstjóri í velferðarráðuneytinu, segir ferlið við innleiðingu jafnlaunastaðalsins hafa verið krefjandi og lærdómsríkt. Nú liggi aðferðafræðin fyrir og mikilvægt að sinna því vel að viðhalda kerfinu á réttan hátt með stöðugum umbótum, eftirliti og réttmætum breytingum. Þá liggur fyrir aðgerðaáætlun í ráðuneytinu um næstu skref.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila