Verða áfram í gæsluvarðhaldi vegna innbrota

Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í  tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 20. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var handtekinn í síðustu viku í þágu rannsóknar lögreglu á innbrotum í umdæminu. Annar maður, sem var handtekinn af sama tilefni, hefur verið úrskurðaður til að sæta vistun í úrræði á vegum barnaverndaryfirvalda til 20. mars.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila