Verja 160 milljóna viðbótarframlagi til landvörslu í sumar

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tillögu umhverfis- og auðlindaráðherra að ráðast í átak í landvörslu í sumar. Verður 160 milljónum veitt aukalega til landvörslu á stöðum í náttúru Íslands sem fjölsóttir eru af ferðamönnum. Um er að ræða 70% aukningu landvarðavikna sem ráðið er í til skemmri tíma.
Aukin landvarsla og umsjón með viðkvæmum svæðum er að mati ráðuneytisins ein skilvirkasta leiðin til að vernda náttúru Íslands nú þegar stefnir í metár í heimsókn ferðamanna til landsins. Þá sé  viðvera landvarða einnig öryggismál og er talin ekki síst mikilvæg á þeim svæðum sem enn vantar upp á að innviðir séu fullnægjandi. Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarður munu hafa umsjón með verkefninu sem beinist m.a. að lengingu viðveru landvarða nú í vor og haust í samræmi við lengingu ferðamannatímabilsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila