Á dögunum var haldinn stofnfundur Vestfjarðarstofu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Margt var um manninn á fundinum en Vestfjarðarstofu verður ætlað það hlutverk að sinna og vinna að hinum ýmsu hagsmunamálum vestfirðinga, þ,e sveitarfélaga, íbúa og fyrirtækja á svæðinu. Verkefnin verða eins og fyrr segir af magvíslegum toga en í stofnsamþykkt Vestfjarðarstofu segir meðal annars „markmið Vestfjarðastofu er að efla atvinnulíf á Vestfjörðum, stuðla að velferð íbúa og styrkja Vestfirði sem búsetukost og áfangastað ferðamanna. Markmiði sínu hyggst Vestfjarðastofa ses. ná með öflugu samstarfi atvinnulífs, sveitarfélaga, ríkisvalds og stoðkerfis hins opinbera“. Þá mun Vestfjarðarstofa taka yfir verkefni sem Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur sinnt hingað til og binda vestfirðingar miklar vonir við að með breytingunni verði hagsmunamál fjórðungsins í enn betri betri farvegi en áður.