Viðbrögð við eldgosi og hópslysum rædd á fundi þjóðaröryggisráðs

Fjallað var um viðbúnað vegna mögulegs eldgoss í Öræfajökli og viðbúnað í dreifbýli vegna almannavarnavár og hópslysa á sjöunda fundi þjóðaröryggisráðs sem haldinn var í gær.

Gestir fundarins voru Rögnvaldur Ólafsson, lögreglufulltrúi hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, og Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar, auk annarra fulltrúa frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Veðurstofu Íslands og embætti lögreglustjórans á Suðurlandi.

Þjóðaröryggisráð samþykkti að tillögu ríkislögreglustjóra að hefja undirbúning að því að fram fari fagleg rýni á almannavarnavarnakerfinu og hvað megi betur fara til þess að takast á við nýjar áskoranir, til dæmis að rýna áhættugreiningar og skoða aðferðir sem hafa verið notaðar við áhættugreiningu og gerð viðbragðsáætlana. Jafnframt verði rýnt verklag og viðbúnaður innan umdæma. Þá verður málið rætt áfram á næsta fundi ráðsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila