Viðnámsþróttur hagkerfisins hefur styrkst en viðamiklar áskoranir framundan

Staða og horfur efnahagsmála voru til umfjöllunar í fyrirlestri Lilju D. Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í heimsókn hennar í Danska seðlabankann í gær. Fyrirlesturinn var hluti af Danmerkurferð ráðherra en að auki fundaði hún með ráðherrum mennta- og menningarmála og ræddi samstarf ríkjanna á þeim sviðum.

Góður árangur Íslands í efnahagsmálum eftir fjármálakreppuna 2008 hefur vakið eftirtekt víða erlendis. Staða landsins er ágæt að ýmsu leyti enda er skuldastaða ríkissjóðs góð í alþjóðlegum samanburði, erlend staða þjóðarbúsins er jákvæð og gjaldeyrisvaraforði þjóðarbúsins öflugur. Þannig hefur viðnámsþróttur hagkerfisins styrkst. Hins vegar stendur íslenskt efnahagslíf frammi fyrir viðamiklum áskorunum um þessar mundir eins og kólnun hagkerfisins, stöðunni í kjaraviðræðum, horfum í ferðaþjónustu og ástandi loðnustofnsins. Það er mikilvægt að takast á við þessar áskoranir af festu og ábyrgð til að tryggja áframhaldandi lífskjarasókn í landinu,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila