Viðreisn kynnir frambjóðendur í Hafnarfirði

Frambjóðendur Viðreisnar í Hafnarfirði.

Viðreisn hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem flokkurinn birtir lista yfir þá frambjóðendur flokksins sem bjóða sig fram í Hafnarfirði í komandi sveitastjórnarkosningum. Í tilkynningunni segir að Jón Ingi Hákonarson ráðgjafi í starfsendurhæfingu muni leiða fyrsta sæti listans. Í öðru sæti verður Vaka Ágústsdóttir ráðningar og þjálfunarstjóri hjá LS – retail og Þröstur Emilsson framkvæmdastjóri verður á þriðja sæti listans. Í tilkynningunni segir jafnframt að markmið Viðreisnar sé að berjast fyrir réttlátu samfélagi, fjölskylduvænna samfélagi og virkja almenning til áhrifa. Þá segir jafnfram að flokkurinn vilji stuðla að virkjun lýðræðisins og setja ávallt almannahagsmuni framar sérhagsmunum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila