Dómsmálaráðuneytið hefur sent Vigdísi Hauksdóttur borgarfulltrúa Miðflokksins erindi þar sem fram kemur að ráðuneytið ætli að taka kæru hennar varðandi kosningasvindl í síðustu borgarstjórnarkosningum til efnislegrar meðferðar.
Í bréfi ráðuneytisins kemur fram að óskað verði eftir öllum gögnum málsins og athugasemdum frá nefndinni ef einhverjar eru. Vigdís greindi frá því á fésbókarsíðu sinni í morgun að hún væri afar ánægð með að málið yrði tekið til meðferðar af hálfu ráðuneytisins.
Upphaf málsins má rekja til bréfa og sms skeytasendinga til tiltekinna hópa undir því yfirskyni að efla kosningaþátttöku en Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurborg hafi brotið persónuverndarlög með hátterni sínu en í niðurstöðu persónuverndar segir meðal annars
“ Bréfin voru með mismunandi hvatningarskilaboðum sem voru gildishlaðin og í einu tilviki röng og voru til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þeirra í kosningunum. Helmingur ungra kjósenda fékk jafnframt smáskilaboð, m.a. með upplýsingum um kjörstaði.„
„Var tilgangur þessarar vinnslu persónuupplýsinga að rannsaka áhrifamátt hinna ólíku bréfa og smáskilaboðanna á kjörsókn þessa hóps. Þá notaði Reykjavíkurborg framangreindar persónuupplýsingar frá Þjóðskrá einnig til að senda konum 80 ára og eldri og erlendum ríkisborgurum bréf með gildishlöðnum skilaboðum, sem voru til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þeirra í kosningunum„
Niðurstöðu persónuverndar má sjá nánar með því að smella hér.