Vilja efla samstarf Íslands og Bretlands enn frekar

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra Íslands og Michael Gove umhverfis og auðlindamálaráðherra Bretlands.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fundaði í vikunni með Michael Gove, ráðherra umhverfismála, matvælaframleiðslu og byggðamála í Bretlandi en sjávarútvegsmál heyra undir ráðuneyti hans. Gove var staddur hér á landi til að funda með íslenskum stjórnvöldum og kynna sér sjávarútvegsstarfsemi með tengsl við Bretland.

Það er gagnkvæmur áhugi á því að efla samstarf ríkjanna enn frekar í kjölfar Brexit og við lítum á Bretland sem afar mikilvægan bandamenn þegar kemur að fríverslun. Bretar eru nú að taka á nýjan leik stjórn á sínum sjávarútvegi og við Íslendingar erum reiðubúnir að deila með þeim reynslu okkar og þekkingu. Fyrir Breta er Ísland gott dæmi um ríki sem hefur kosið að standa utan við Evrópusambandið en á eftir sem áður í nánu samstarfi við samandið og aðildarríki þess, ekki síst í fríverslunarmálum. Við getum því miðlað af margvíslegri reynslu og um leið styrkt tengsl okkar við Bretland,“ segir Guðlaugur Þór.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila