Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að uppljóstraranum Edward Snowden verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að veita Edward Snowden íslenskan ríkisborgararétt. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 62,90%
Já 29,41%
Hlutlaus 7,69%