Vilja ekki að Ísland undirriti Marokkóyfirlýsinguna

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að Ísland undirriti Marokkóyfirlýsinguna umdeildu sem felur í sér breytingu á skilgreiningu á hópi þess fólks sem er á flótta og réttindum þeirra. Þetta kom fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Ísland að skrifa undir Marokkóyfirlýsinguna. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 92,9%
Já 5,8%
Hlutlaus 1,2%
Alls voru greidd 724 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila