Vilja ekki að Julian Assange verði ákærður

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að Julian Assange stofnandi Wikileaks verði ákærður. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að ákæra Julian Assange stofnanda Wikileaks. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 75,7%
Já 16,7%
Hlutlaus 7,6%
Greidd voru 621 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila