Vill rammaáætlun um alla helstu málaflokka

Smári McCarthy þingmaður Pírata.

Setja ætti rammaáætlun um alla helstu málaflokka í íslensku samfélagi líkt og þegar er gert í orkumálum. Þetta var meðal þess sem fram í máli Smára McCarthy þingmanns Pírata í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur. Smári bendir á að þó að menn deili um rammaáætlanir gefi slíkar áætlanir mönnum einhverja hugmynd um hvert skuli stefna, sem kæmi sér vel til dæmis hvað varðar heilbrigðismálin “ þetta má náttúrulega ekki vera þannig að það bindi hendur manna í því að taka ákvarðanir en að þetta sé allavega þannig að það sé einhvers konar hugmynd hvert við erum að fara og hvers vegna við séum að fara þangað„,segir Smári. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila