Nauðsynlegt er að taka á spillingunni sem er eins og stórt graftrarkýli á Íslensku samfélagi. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Ingu Sæland formanns Flokks fólksins í kosningaútvarpinu í dag en hún var gestur Markúsar Þórhallssonar. Inga segist vilja taka á spillingunni með föstum tökum og bendir á að Ísland mælist spilltasta land Norðurlanda“ ég segi bara þetta er risastórt graftrarkýli af spillingu og ég vil stinga gat á það og þó það verði eins og nálarauga að þá vona ég svo sannarlega að með tímanum muni leka úr því þannig við getum staðið keik eftir, bið bara um tækifærið til þess að taka á þessu„,segir Inga.