Vísindaráð Almannavarna fundar þessa stundina vegna skjálftahrinu í eldstöðinni Kötlu en tíðir jarðskjálftar hafa orðið á svæðinu undanfarin sólarhring. Í hádeginu í dag hófst svo mjög öflug skjálftahrina og hefur litakóði fyrir flugumferð verið færður á gult stig, en það þýðir að eldstöðin sýni merki um virkni umfram venjubundið ástand. Ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu eru í viðbragðsstöðu og þá hefur verið ákveðið að lögregla fari inn með Múlakvísl í þeim tilgangi að kanna með fjölda ferðamanna á svæðinu. Búast má við frekari upplýsingum að loknum fundi Vísindaráðs Almannavarna.