Vissi ekki hvaða lög gilda um upptökur og sendi því upptökuna á fjölmiðla

Bára Halldórsdóttir.

Bára Halldórsdóttir sem tók upp samtöl sex þingmanna á Klaustur Bar segist ekki hafa vitað hvaða lagareglur væru um upptökur eins og þá sem hún tók upp og sendi því fjölmiðlum, Stundinni og DV upptökuna og lét þeim eftir að taka ákvörðun um birtingu. Þetta kom fram í máli Báru í þættinum Vinnuskúrnum en hún var gestur Gunnars Smára Egilssonar. Bára segir að hún hafi í raun ekki vitað hvort og hvað væri hægt að gera við upptökuna þegar hún sendi hana „ ég bjóst ekki við því að þeir gætu nýtt hana neitt nema það sem fram kom um stöðuveitingar í sendiherraembætti„,segir Bára. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila