Vitnaleiðslur yfir skipverjum togarans Polar Nanoq eru hafnar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sakborningurinn í málinu sem grunaður er um að hafa orðið Birnu Brjánsdóttur að bana mun þó að öllum líkindum ekki vera kallaður fyrir dóm í dag en. Vitnin sem þegar hafa verið leidd fram fyrir dóm segja að sakborningurinn hafi virst stressaður um borð í togaranum og hafi meðal annars þurft að gefa honum róandi þegar honum barst smáskilaboð frá fjölmiðli. Þá hefur komið fram hjá vitnunum að hann hafi sést taka handklæði úr rauðu Kia bifreiðinni sem hafi virst blautt og það hafi vitnunum þótt sérkennilegt. Búist er við að vitnaleiðslur standi yfir fram eftir degi.