Vogunarsjóðir hafa náð fram öllu því sem þeir hafa viljað ná fram. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra í síðdegisútvarpinu í dag en Sigmundur var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Aðspurður um hvort ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sé vinveittari vogunarsjóðum en sú ríkisstjórn sem sat á undan segir Sigmundur “ eigum við ekki að vera kurteisir og segja bara að hún sé frá þeirra sjónarhorni skilningsríkari heldur en ríkisstjórn mín var„. Sigmundur segist ekki skilja hvers vegna núverandi ríkisstjórn treysti þeim aðilum sem standa á bak við kaupin sem fram fóru í vikunni á eignarhlutum Arion banka „ því yfirlýsingar frá ráðherranum að þarna séu einhverjir erlendir fjárfestar að koma inn í landið og hafi áhuga á rekstri hér, því þetta eru sömu aðilarnir og eru búnir að vera hér með kaupin á þessum kröfum og reyna að handrukka þær„,segir Sigmundur.