Með nýjum kjarasamningum og þeim forsendum sem liggja þeim til grundvallar er vonast til að Seðlabankinn tilkynni vaxtalækkun í næsta mánuði. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Vilhjálms Birgissonar formanns Verkalýðsfélags Akraness í síðdegisútvarpinu í dag en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar. Vilhjálmur segist onast til þess að sjá að minnsta kosti 0,50 punkta lækkun þegar vaxtaákvörðun verður tilkynnt 22.maí næstkomandi, þó gæti brugðið til beggja vona í þeim efnum ef fyrirtæki hækki verð eins og sum fyirtæki hafa hótað verði samningarnir samþykktir “ það eru vissulega vonbrigði og viðbrögðin komu okkur talsvert á óvart„,segir Vilhjálmur. Hlusta má á viðtalið hér að neðan.