Grunur leikur á að leynilegar upplýsingar sem varða þjóðaröryggi Svíþjóðar hafi lekið til 17 tölvutæknimanna sem unnu við tölvukerfi á vegum sænska ríkissins. Aðganginn fengu mennirnir án þess að þurfa að fara í gegnum sérstaka öryggisprófun sem gangast þarf undir til þess að fá aðgang að umræddu kerfi. Mennirnir voru undirverktakar á vegum annars undirverktaka sem var á vegum tölvurisans IBM en meðal þeirra 17 manna sem fengu aðgang að kerfinu er serbneskur fyrrverandi hermaður sem gengdi herþjónustu hjá serbneska hernum í að minnsta kosti í tíu ár. Yfirheyrslur vegna lekans eru þegar hafnar og unnið að því að greina hverjir beri ábyrgðina á lekanum. Meðal þeirra sem hafa verið yfirheyrðir eru yfirmenn tölvuöryggismála hjá Tansportstyrelsen.