550 milljónum úthlutað til að bæta innviði ferðamannastaða ​

Tuttugu og átta verkefni hlutu styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2023 fyrir alls 550 milljónir.  

Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Heimilt er að fjármagna framkvæmdir sem snúa að öryggi ferðamanna, náttúruvernd og uppbyggingu, viðhaldi og vernd mannvirkja.

„Verkefnin sem hljóta styrk í ár snúa að fjölbreyttri uppbyggingu um land allt. Það er sérstaklega ánægjulegt að 20 af 28 verkefnum sem hljóta styrk eru skilgreind á áfangastaðaáætlun innan síns svæðis,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Hæsti styrkurinn að þessu sinni eru 158 m.kr. í verkefnið „Baugur Bjólfs“ á Seyðisfirði. Sex aðrir styrkir eru hver hærri en 20 m.kr.

„Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem situr á Bæjarbrún. Hér er einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð — frá mynni fjarðarins, yfir bæinn, fjallahringinn og suðvestur inn í dalinn. Að ofanverðu gnæfa tindar Bjólfs yfir,“ segir í lýsingu verkefnisins.

101 umsókn barst

Alls bárust að þessu sinni 101 umsókn um styrki, samtals að fjárhæð 2.037.984.107 kr., til verkefna að heildarfjárhæð 6.401.045.030 kr. Af innsendum umsóknum voru 24 ekki taldar uppfylla formkröfur sjóðsins eða falla utan verksviðs hans, skv. lögum nr. 75/2011.

Stjórn Framkvæmdasjóðsins lagði til að alls 28 verkefni yrðu styrkt að þessu sinni, samtals að fjárhæð 550.000.000 kr. Fallist var á tillögur stjórnarinnar og hefur Ferðamálastofu verið falið að ganga til samninga við styrkþega.

Lista yfir verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni má finna hér að neðan. 

• 157,6 m. kr. Baugur Bjólfs útsýnispallur á Seyðisfirði
• 81,1 m. kr. Öryggi og náttúrvernd við Stuðlagil
• 72 m. kr. Útsýnispallur í hlíðum Reynisfjalls
• 27 m. kr. Hrísey – greið leið um fornar slóðir
• 24 m. kr. Uppbygging á Englandi í Borgarbyggð
• 21 m. kr. Yltjörn – Bætt aðgengi
• 20 m. kr. Seltún – áframhaldandi uppbygging
• 18,7 m. kr. Múlagljúfur – 2. áfangi. Framkvæmd og frekari hönnun áfangastaðar
• 15,5 m. kr. Innviðauppbygging, náttúruvernd og öryggismál í selafjörunni við Ytri-Tungu á Snæfellsnesi
• 13 m. kr. Staðarbjargavík – Hönnun útsýnispalla og stiga
• 12,3 m. kr. Umbætur í Ölfusdölum – Reykjadalur og nærliggjandi svæði
• 11,4 m. kr. Spákonufellshöfði – Fasi 2
• 10,5 m. kr. Hrunalaug uppbygging
• 10,2 m. kr Stikun og merkingar á gönguleið milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar
• 8,3 m. kr. Uppbygging Hóla í Hjaltadal sem áfangastaðar fyrir ferðamenn.
• 6,8 m. kr. Grímsey – bætt upplifun og öryggi
• 6 m. kr. Gengið úr leirnum
• 5,9 m. kr. Glymur í botni Hvalfjarðar
• 5,8 m. kr. Hólmsá-Rauðibotn-Hólmsárlón, skipulag, hönnun og merkingar
• 4,7 m. kr. Valagil – göngustígur og áfangastaður
• 4,5 m. kr. Hönnun á aðgengi og sturtuaðstöðu á Langasandi.
• 3,3 m. kr. Stikun og merkingar gönguleiðar yfir Fimmvörðuháls
• 3 m. kr. Göngustígar og aðgengi Listasafni Samúels í Selárdal
• 2,8 m. kr. Gönguleið að Selvíkurvita og rústum Evangers – 1. Hluti
• 2,5 m. kr. Bætt aðgengi að Sviðsetningu Haugsnesbardaga
• 600 þ. kr. Merking gönguleiðarinnar um Snæfjallahringinn
• 500 þ. kr. Áningarhólf við Skjöld í Stykkishólmi-Helgafellssveit
• 460 þ. kr. Gönguleið: Fellsströnd – Skarðsströnd

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila