
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni um samtals 77 milljónir króna til endurnýjunar á tækjabúnaði. Ráðstöfunin byggist á forgangsröðun þar sem brýnustu þarfir stofnananna voru lagðar til grundvallar með það að markmiði að efla viðbragðsgetu, tryggja öryggi sjúklinga og bæta rekstrarhagkvæmni.
Varaflsstöðvar í forgangi
Af heildarfjárhæðinni renna 32 milljónir króna til kaupa á varaflsstöðvum. Slíkur búnaður er talinn lykilforsenda órofinna heilbrigðisþjónustu þegar rafmagn bregst, til dæmis í óveðrum. Þörfin kom skýrt í ljós í fárviðrinu í desember 2019 þegar víða reyndist varaafl ótryggt eða ekki til staðar. Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær fjármagn til varaafls við starfsstöðvar á Húsavík, Sauðárkróki, Blönduósi og Siglufirði og Heilbrigðisstofnun Suðurlands til kaupa á varaaflsstöð í Vestmannaeyjum.
Fjölbreytt tækjakaup
Auk varaflsstöðva eru veittir styrkir til kaupa á hjartastuðtækjum, ómtækjum, mónitorum, bráðabúnaði fyrir heilsugæslu og flutningskössum fyrir nýbura. Fjármagnið kemur af safnlið almennrar sjúkrahúsþjónustu sem ráðherra er heimilt að ráðstafa til tilgreindra verkefna. Á þessu ári hefur þegar verið veittur rúmlega 140 milljóna króna styrkur af sama lið til kaupa á tölvusneiðmyndatæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
