
Þær fyrirætlanir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar (WHO) að taka yfir hluta valda landa til þess að taka ákvörðun sjálf þegar koma upp faraldrar og sú áætlun að koma á alheimsbóluefnapössum er fráleit og gott dæmi um hvernig málin hafa þróast á slæman veg, í átt til forræðishyggju og stjórnlyndis. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Helga Arnar Viggóssonar framkvæmdastjóra og forritara í þættinum Í leit að sannleikanum í dag en hann var gestur Arnars Þórs Jónssonar.
Embættisvaldið stendur veikum fótum gagnvart hagsmunaöflum
Helgi segir að þetta sé gott dæmi um hvað geti gerst þegar hagsmunaaðilar nái tökum á stofnunum en eins og kunnugt er hafa lyfjarisar sterk fjárhagsleg hagsmunatengsl við WHO. Hann bendir á að í Bandaríkjunum hafi til dæmis lítið lyfjafyrirtæki haft þau áhrif á stofnanir með mútum til embættismanna að stofnanirnar sem embættimennirnir unnu við hafi hleypt ópíóðalyfi sem lyfjafyrirtækið framleiddi á markað, lyfi sem síðar átti eftir að reynast stórhættulegt.
Lyfjarisar eyða gríðarlegum fjármunum í lobbýisma
Hann bendir á að í Bandaríkjunum og í Evrópu eyði lyfafyrirtækin slíkum upphæðum til þess að lobbýja fyrir sinni framleiðslu að hún er fjórföld á við þá upphæð sem hergagnaiðnaðurinn eyðir í lobbýisma. Lobbýistar geti þannig náð tangarhaldi á stofnunum og þannig í framhaldinu geti hagsmunaaðilar haft áhrif á lagasetningar innan þeirra landa sem eiga aðild að stofnununum.
Helgi segir að síðan hafi stórir fjölmiðlar dottið í þá gryfju að spila með og brugðist því hlutverki sínu í að horfa gagnrýnum augum á mál eins og ásælni WHO í að ná yfirráðum hluta heilbrigðismála í löndum heims. Þegar svínaflensufaraldurinn hafi riðið yfir heiminn hafi fjölmiðlar spyrnt við og komist að því og bent á að svínaflensufaraldurinn hafi í raun verið nokkurs konar svikafaraldur en í Covid hafi stóru meginstraumsmiðlarnir breyst í nokkurs konar halelújakór.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan