Ábyrgð ríkisins á hælisleitendamálum færð yfir á herðar Reykjavíkurborgar

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigfús Aðalsteinsson og Baldur Borgþórsson frá Okkar borg – Þvert á flokka í síðdegisútvarpinu um hælisleitendamál og samninga Reykjavíkurborgar við ríkið. Í umræðunni kom fram að ábyrgð og kostnaður vegna móttöku og þjónustu við hælisleitendur hefði í vaxandi mæli færst frá ríkinu yfir á borgina án þess að full fjármögnun fylgdi með. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Samningar skuldbinda borgina til umfangsmikillar þjónustu

Í þættinum bentu Baldur og Sigfús á Reykjavíkurborg hefði gert samninga við ríkið um að taka á móti miklum fjölda hælisleitenda og sjá þeim fyrir húsnæði og þjónustu. Samningarnir kváðu á um móttöku hundruða einstaklinga og í kjölfarið bæri borgin ábyrgð á húsnæðisúrræðum, félagslegri þjónustu og öðrum stoðkerfum. Þegar umsækjendur lyku ákveðnu tímabili í kerfi ríkisins færðust þeir yfir á ábyrgð sveitarfélagsins. Þar með féllu út greiðslur eða þátttaka ríkisins á sama tíma og þjónustuþörfin hélt áfram innan borgarkerfisins.

Kostnaður lendir á borgarbúum

Í umræðunni kom fram að þegar ríkið drægi sig í hlé bæri Reykjavíkurborg allan kostnað af áframhaldandi þjónustu. Þetta hefði haft bein áhrif á fjárhag borgarinnar og skapað aukið álag á velferðarkerfi, húsnæðismál og aðra lögbundna þjónustu. Afleiðingarnar kæmu fram í rekstri borgarinnar og bitnuðu á borgarbúum þegar fjármunir þyrftu að færast frá öðrum verkefnum til að standa undir skuldbindingunum. Borgarstjórn þyrfti að enduskoða móttöku hælisleitenda.

Krafist skýrrar verkaskiptingar

Þeir bentu á að núverandi fyrirkomulag skapaði óskýra verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Reykjavíkurborg stæði eftir með ábyrgðina án þess að hafa fullt vald yfir málaflokknum eða tryggða fjármögnun. Slíkt fyrirkomulag sé ósjálfbært til lengri tíma og óásættanlegt fyrir borgina, þar sem önnur verkefni gætu orðið undir vegna fjárhagslegs álags.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila