Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra skrifar:
Oft minnist ég þess hversu mikill ríkisútvarpsmaður ég var á mínum ungdómsárum. Nú eru farnar að renna á mig tvær grímur og velti oft fyrir mér þeirri miklu lögvörðu einokunaraðstöðu sem Ríkisútvarpið hefur. Æ oftar finnst mér fréttamenn RÚV brjóta hlutleysis hlutverkið sem þeim er fyrir skipað í lögum að halda.
Bergsteinn Sigurðsson er vaskur maður og minnir á Skarphéðinn og fer oft óvarlega með Rimmigýgi, beitir öxinni fast og heggur á báða bóga. Í Kastljósþætti á miðvikudagskvöld tók hann fyrir nýsett búvörulög og vandaði Alþingi ekki kveðjur sínar og fór frjálslega með staðreyndir málsins.
Hann kallaði fyrir Landbúnaðarráðherra Bjarkeyju Olsen og mætti þar ofjarli sínum. Bjarkey var sannfæringin uppmáluð og hvert högg Rimmigýgju geigaði og fyrir rest stóð spyrill einokunarstöðvarinnar eftir með kjánalegt glott á vörum.
Það var ljóst að Bergsteinn var illa að sér um hver tilgangur búvörulaganna er og ekki hafði hann hugmynd um að mjólkuriðnaðurinn hefur hagrætt neytendum og bændum til ávinnings á grundvelli lagaheimildar frá 2004. Ekki hafði hann hugmynd um að ESB hafði sett svipaða löggjöf gagnvart sínum landbúnaði um svipað leyti.
Fréttamaðurinn talaði um einhverja risa á kjötmarkaði. En hann er í þjónustu ofurrisans á fjölmiðlamarkaði, er í húsi kattarins og litlu mýsnar mega vara sig.
Fréttamaðurinn talaði við ráðherrann eins og um glæpamál væri að ræða og lét liggja að því að Þórarinn Ingi Pétursson alþingismaður hefði verið að misnota sína aðstöðu. Fram kom að Búsæld fyrirtæki bændanna var ekki beisnara en það að á hverju hausti urðu fátækir sauðfjárbændur að breyta hluta af afurðaverði í hlutafé.
Ef fréttamenn RÚV yrðu nú hjá Risanum að breyta hluta af launum sínum í hlutafé svo RÚV lifði af er ekki ólíklegt að boðað yrði verkfall. Mjólkuiðnaðurinn hagræddi og MS er í dag með sex afurðastöðvar í stað átján áður. Kannski eru ekki forsendur til að reka nema eitt Sláturfélag fyrir sunnan og annað fyrir norðan?
Bændur þessa lands eru ekki útsmognir af klækjum eða gróða fíkn en þeir þurfa að koma sínum afurðum á markað á sanngjörnu verði, um það snýst þeirra líf. Þar skiftir engu máli hvað trúbræður í Samkeppniseftirlitinu, Verslunarráði, og Neytendasamtökunum segja.
Svo segja bissnessmenn og komast upp með það að segja að það sé bara pláss fyrir eitt flugfélag á Íslandi og eitt Ríkisútvarp. Það er fámenn-ið sem er okkar akkilesarhæll. Fréttamaðurinn var utangátta og sneri öllu á haus í þessu Kastljósi.